Aðalvalmynd

Myndir 2009...

Auglýsing

Myndir...

Bloggarar...

Börnin...

Ýmislegt...

Gagnasafn

Ný færsta og læti..Heiðrún Halldórsdóttir

Jæja ég hef ákveðið að brjóta brodd á ofulæti mínu og blogga dulítið, enda ekki gert það frá því 2. júlí.. Ætli það sé ekki komin tími á smá línu..

Sumarið er víst búið. Mjög gott sumar=) Mikið skemmtilegt gert og mjög ánægð með það, hefði samt mátt vera aðeins lengur, maður var að fatta að það væri að byrja þegar það var búið.. Stutt í jólin..

Annars er voðalega lítið að frétta hérna úr Borgarnesinu.. Skólinn byrjaður á fullu og mér gengur bara nokkuð vel. Að vísu eru að koma núna stór verkefni en það er svo sem allt í lagi að fara að bæta í þetta.. Vígsluathöfn skólans er einmitt á fimmtudaginn. Síðan er vetrarfrí 7. nóv. Það er bara nokkuð gott..  Síðan er það vinnan, elska vinnuna mína og finnst alltaf gaman að fara að vinna.. Er að vísu að vinna svolítið mikið, en það er allt í góðu.. Vinna s.s alltaf fyrstu 3 helgarnar í mániðinum.. já mjög óheppilegt, á frekar lítin pening síðustu helgarar.. haha

Körfuboltinn alveg að byrja, einn leikur að vísu búin, sem var feitt tap.. Nú síðan hefst deildin á föstudaginn. Á móti Blikum í Kópavogi.. Líðið s.s er ekki með neina útlendinga og Pálmi, Hafþór og Finnur munu þjálfa.. Þetta verður eitthvað glæsilegt.. NOT! Nú ég get ekki sagt að ég sé dugleg í íþróttahúsinu, bara sökka feitast.. Að vísu fer í ég magi, rass og læri sem tekur á, en það er bara 2. í viku.. Þarf að fara að gera eitthvað af viti í þessum málum.. Þar að auki er ég frekar slök í hestunum.. En það er svo sem ekki mikið að gerast í því.. Þetta kemur allt þegar daginn fer að stytta og maður hefur ekkert að gera...

Nú síðan af skemmtunum.. Við vonkonur höfum nú verið í slakari kanntinum hvað það varðar.. En það dúkka upp eitt og eitt kvöld. Reyni að gera það svona milli vinnu og skóla.. Síðasta djamm var Suðamessa 2008, reddaði mér fríi á sunnudeginum og gerði mér glatt kvöld með mínu fólki.. Partý hjá Thlemu, rosalega gaman. Fórum svo á ballið og týndum hvor annari.. En fann þar alla fjölskylduna og dansaði fram á rauða nótt með sistkynum og mömmu.. Mjög skemmtilegt. Mynda linkar hér til hliðar..  Síðan er bara að fara að plana sumarbústaðarferð stelpur ekki satt??

Nema hvað... Mikið er barnalánið í kringum mig.. Áslaug Rún sæta frænka mín varð 1 árs 14. september. Hún er algjör krúttubomba. Nú síðan eru það litlu tvíburavinkonur mínar sem eru búnar að fá nöfn. Sara Fanný og Eydís Anna. Þær alveg rifna út. Bara vest hvað ég er óduglega að fara í bæinn að hitta þessar skvísur.. Mætti vera oftar.. En það er kreppa og bensín er dýrt, mæðurnar þurfa bara að vera duglega á barnalandi=) Koma svo Ragnheiður og Katrín=)
Nú síðan er það litlan þeirra Gunnars og Dúddu. Hún fæddist 9. ágúst. Hún er líka búin að fá nafn og heitir sú stutta Agla. Finnst það alveg svakalega flott nafn. Hún er ekkert smá duglega og farin að leika alls kona listir. Snúa sér og algjör dúlla.. maður sér samt ekki eins mikinn mun í hvert skipti þar sem maður sér hana svo oft.. Já maður er heppinn að eiga öll þessi börn..
Jæja held að ég fari bara að segja þetta gott. Ætlaði nú bara að stikla á stóru en þetta er bara orðið ansi langt. Er orðin sjúk í þætti og get ekki hætt að sækja þætti á netið.. Gray´s og Gossip girl standa þó hæðst.
Annars vona ég bara að allir hafi haft gaman af, og ætla mér að vera duglegri að blogga. Og ekki gera neina vitleysu og eyða í rugl í kreppunni=)
Já segjum þetta gott.. Ætla að setja nokkrar svipmyndir frá liðnum dögum og mánuðum...
Heiðrún Halldórs kveður.

Já það var stuð á Suðamessu.. hah

Ég með Öglu Gunnarsdóttir, ný skírða.

Ég með Söru Fanný og Eydísi

Áslaug Rún daginn f. 1. árs afmælið sitt..

Þessir voru einu sinni litlir. En ekki legnur, samt svo stutt síðan..

Ein í lokin úr afmælinu mínu. Ég með brot af vinkonunum. Gott djamm.. Ekki satt Svava? hah
Þessar árans myndir vilja ekki vera í miðjunni!!!!!

Prófíll

Könnun

Hverjum er að kenna að Sparisjóðurinn fór á hausinn?

Teljari

Klukkan

Leit

Innskráningar kubbur