Heiðrún Halldórsdóttir
10. JÚNÍ.. Þriðjudagur..Heiðrún Halldórsdóttir
Jæja já, hvorki meira né minna en 2 mánuðir og 2 dagar síðan ég ritaði hérna..Svo sem ekkert svakalegt búið að gerast og ætla ekki að telja það allt upp hérna..
Annars þá er ég hálskirtlunum fátækari frá því síðast og satt að segja elska ég að vera laus við þá.. Það er eins og heill haus hafi losnað úr hálsinum á mér, mikill léttir og mun betra að borða og allt..
Síðan er bara þetta venjulega, djamm, vinna, skóli og bla blí blú.. Gekk vel í skólanum og hlakka til að byrja aftur í haust, reyna að klára þetta sem eftir er...
Allavegana þá er allt að gerast.. Sumarið komið og allt framundan..
Hef hafið störf hjá móðir minni svo að hún komist í sumarfrí í júní.. Samhliða hótelstörfum á Hótel Borgarnesi.. Í júli og ágúst er það svo Holt!
Skemmtanir eru jú partur af sumrinu og er maður byrjður að skipuleggja það og buin með nokkrar skemmtanir..
Á síðast laugardag gerðum við stöllur (ég, Lófa og Svava) okkur glaðan dag og fengum okkur í aðra tána og kíktum svo rölt í frábæru veðri í miðbænum um kvöldið..
Næstu helgar eru svo þétt skipaðar..
13.-15. júní - vinna föst og sunnudag.. Útskrift hjá Dúddu á laugardag og jafnframt afmæli hjá Söru Dögg...
16. júní - David Guetta og GusGus...
20.-22. júní - Hestaferð...
27.29. júní - Vinna...
4.-6. júlí - Landsmót hestamanna.. Frá fimt til sun =)
18. júlí afmæli.. Jafnvel bara grill og bjór =)
Verslunnarmannahelgin - EYJAR 2008..
Þetta er svona það helsta þetta sumarið.
En já það eru nánast allar frí helgar skipulagðar.. Reyndar 1 eða 2 sem ég er ekki búin að ákvaða.. Fyrir svo utan alla frí dagana í miðri viku þegar ég verð á vöktum í júlí og ágúst=)
Þetta verður alveg meiri háttar.
Dagurinn í dag er síðan búin að vera meiri háttar.. Var að vinna til 4. Þá ákváðum við Thelma að skella okkur til RVK í ljós (já skyndihugmyndirnar geta verið góðar) fengum okkur síðan að snæða með Svövu og fórum svo heim. Horfðum á einhvern þátt, fengum okkur ís, skelltum okkur á hestbak, sprelluðum og löbbuðum svo upp á Grábrók.. Hörkudagur með hörku konum=) hah
Myndir af þessu eru svo væntanlegar á myspace.. Já vel á minnst myndirnar frá laugardagskveldinu eru komnar inn.. Ekkert nema myndir af okkkur og ennngu öðru..
Allavegana.. Þá hef ég brotið ísinn að nýju og búin að blogga.. Vil frá fullt af athugasemdum=)
//Heiðrún Halldórsdóttir sumarkona//
