Heiðrún Halldórsdóttir
Mánudagur...Heiðrún Halldórsdóttir
Versunnarmannhelgin næsta helgi.. Og eftir það þá finnst mér nánast eins og sumarið sé búið!!!Við vinkonur höfum nú ekki ennþá gert upp hug okkar hvert skal halda... En það kemur þá bara í ljós á föstudaginn ef við verðum ekki búnar að ákveða það!! Skiptir svo sem ekki öllu máli ef við erum saman =)
Ekki nema 17 dagar þangað til við stöllur verðum komnar til Köben. Það verður nú ansi gaman =)
Helgin bara alveg svaka góð.. Náði smá hvíld, allavega meiri en þegar maður er í útlegu!
Á laugardaginn hélt Thelma svo upp á 20 ára afmælið sitt.. Byrjaði á því að við fórum 8 saman að borða á Venus. Rosalega góður matur og mjög gaman bara... Eitthvað var mannskapurinn nú feimin til að byrja með en það var líka bara allt í lagi. Síðan skruppum við aðeins heim að græja gjöfina.. Gáfum henni ss. 2 eldhússtóla sem að við máluðum sjálfar. Rosa sætt. Eftir matinn var síðan bara skellt sér upp í Skuggahverfi þar sem að upphófst svaka partý. Mikið drukkið, dansað, talað, farið í göngutúr, rúnt og ég veit ekki hvað og hvað. Alveg hasarstuð =) Takk fyrir kveldið allir sem gerðu það skemmtilegt =)
Í gær var síðan vaknað bara alveg eldhress, dressaði mig upp fyrir afmælið hjá Krumma. En hann á einmitt 9 ára afmæli í dag. Finnst svo rosalega stutt síðan að barnið fæddist.. Það verður komin ferming áður en maður veit af. Grillpartý og svaka stuð hjá þeim. Eftir afmælið skelltum við mamma okkur í heimsókn. Og síðan var tekin ör rúntur með Svövu.
Í dag er málið eindfallt... Klára að vinna og fara beint heim, leggjast upp í sófa og gera ekki neitt!! Og sofna snemma síðan. Þarf nebbla að vakna snemma í fyrramálið..
Jæja nema hvað, bara að láta vita að helginni.
Heiðrún Halldórsdóttir....
Miðvikudagur...Heiðrún Halldórsdóttir
hummm...
Takk kærlega fyrir allar afmæliskveðjurnar á netinu, sms og hringingar =)
Tja það má segja að það sé erfiðara að blogga efit því sem lengra líður frá síðasta bloggi...
Nema hvað fyrsti dagurinn í dag efitr fríið... Satt best að segja var bara ansi gott að komast aftur inn í rútínuna... Var að vísu smá erfitt að vakna í morgun en það er eitthvað sem er yfirstíganlegt. En í heildina bara gaman...
Hafði það alveg glimrandi gott í fríinu. Fór í hálf-hringferð í síðustu viku.. Borgarnes-Akureyri-Egilstaðir-Sauðárkrókur-Drangsnes-Borgarnes. Jú eins og þið sjáið þá var víða komið við.. Skelltum okkur á djammið á Sauðárkróki. Sem var b.t.w ógeðslega gaman... Var alveg heilluð af þessum bæ. Allir svo vinalegir og partý og læti =) Langar að djamma þar aftur..
Á laugardaginn var svo brunað á Drangsnes.. Ekki spyrja af hverju.. En ferðinni var samt haldið þangað.. Það var rosalega gaman að mörgu leyti.. Hefði samt mátt sleppa nokkrum steupum.. Eða við öll hefðum átta að gera það.. Allavega ég og Svava!! hehe
Brunuðum svo í nesið á sunnudeginum..
Ég sem var búin að lofa myndum hef ekki ennþá komist í það.. Þetta er allt að koma.. Það verður líka mikið þegar þar að kemur!
Tja... Helgin er að mesu ráðin. Á föstudaginn er það Borgarnes enn og aftur.. Eitthvað að stússast fyrir afmælið hennar Thelmu.. Síðan á laugadaginn verður svo haldið upp á það.. Jú stúlkan er að verða 20 ára á morgun.
Það verður svaka stuð í afmæli.. Ég hlakka mikið til!
Í dag fór ég svo með Katrínu að fá sér tatto.. Og ég hugsa að ég fái mér aldrei tatto.. Hún var voðalega dugleg og stóð sig rosa vel.. Hélt í hendina á henni og hún var næstum bitin, klóruð og kreyst af... Hehe en úr þessu öllu varð flott tatto..
Jæja ætla að fara að horfa á TV og koma mér svo í háttinn.. 
Vantar bara 11 kerti..
Til hamingju með afmælið eftir 1 og háltan klukkutíma Thlema beibí =)
Afmælisstelpa...Heiðrún Halldórsdóttir
Well well... Ætli ég verði ekki að játa að það sé komin tími á eins og eitt blogg.. Hugsa samt að ég nenni ekki að hafa það langt að þessu sinni...Búin að hafa það TUSSU gott í fríinu mínu...
Fyrstu dagana var ég að stússast með Krumma og Hörð Gunnar, fara á Bjössó, fjöruferð og fleira.. Mjög gaman.. Síðan hefur maður verið að sleikja sólina, vera í sveitinni, mála, útilega og margt fleira.. Bara dásamlegt =)
Skelli myndum inn við fyrsta tækifæri frá þessu öllu saman..
Í dag/ morgun (18.júli) er maður víst orðin árinu eldri.. 21 árs.. orðin allt og gömul.. Takk æðinslega fyrir mig vinir mínir.. Fékk pakkanan svona smá fyrr.. Er nebbla að fara hringferð á morgun =)
Nema hvað ætlaði bara svona rétt að láta vita að ég er ennþá á lífi og er bara að njóta mín í frííííiiiiii.....
P.s. *klikk*klikk*... Og Ypsilon Magnús Hjálmarsson... Og Svava svo botnar þú með svona rödd =)

//Heiðrún Halldórsdóttir (21.árs) //
Mánudagur...Heiðrún Halldórsdóttir
Nú liggur vel á mér.. Nú liggur vel á mér... Gott er að vera léttur í lund lofa skal hverja ánægju stund... ba ba ba...
Það eru ekki nema 3 og hálfur klukkutími í það að ég verði komin í frí.. Umm hlakkar frekar mikið til.
Helgin var annars alveg rosa góð. Á föstudaginn grilluðum við heima hjá Lóu.. Voða gott og borðuðum mun meira en við héldum að við myndum gera.. Eftir það sátum við úti að spjalla. Kíktum svo á glataða Dússa og fórum svo bara snemma heim!
Á laugardaginn skelltum ég og .guð okkur vestur. Náðum í hestana og brunuðum í Skógarnes. Fórum ríðandi þar alla fjöruna endilangt. Rosa gaman. Gistum svo í bústað þarna. Fullt af fólki og rosa fjör. Á sunnudaginn sváfum við svo út og svo var haldið áfram. Mjög gaman, fyrir utan það að ég er smá aum í rassinum.. En það er nú að hjaðna.
Á morgun verður svo sofið út, farið í sund, labbitúr og þvegið bílinn.. Svona sitt lítið af hverju.
Jæja hafið það gott...
//Heiðrún Halldórsdóttir//
Litli hvíti engillinn minn...Heiðrún Halldórsdóttir
Elsku sæta kisan mín lést í gær af slysförum. Aðeins 8 ára að aldri. Minngarathöfn verður sunnudaginn 8. júlí.
Megi guð geyma þig elsku Perla mín...Komdu kisa mín
kló er falleg þín
og grátt þitt gamla trýn.
Mikið malar þú,
mér það líka nú,
víst ertu vænsta hjú.
Banar margri mús,
mitt þú friðar hús,
ekki´ er á þér lús,
oft þú spilar brús.
Undrasniðug, létt og liðug
leikur bæði snör og fús,
við skulum drekka dús.
Þú varst einstök persóna..

Perla í makindum sínum upp á eldhúsborði.

Ég og Perla að opna jólapakkana.

Ég og Perla að kúra saman.
//Heiðrún Halldórsdóttir//
Þú varst einstök persóna..

Perla í makindum sínum upp á eldhúsborði.

Ég og Perla að opna jólapakkana.

Ég og Perla að kúra saman.
//Heiðrún Halldórsdóttir//
Fimmtudagur...Heiðrún Halldórsdóttir
Vá hvað þessi vika ætlar að vera lengi að líða!Finnst þetta aldrei ætla að klárast. Kannski af því að ég get ekki beðið eftir að fara í frí og gera ekki neitt!Annars fín vika svo sem. Fór í sund á mánudaginn með Katrínu. Á þriðjudaginn kom Thelma í bæinn og í gær skellti ég mér í BGN. Fór í sund með Lóu og Svövu. Síðan var mamma mín búin að grilla fyrir mig og stelpurnar komu líka. Síðan litaði ég og plokkaði Lóu og mig. Fór svo og klippti Gunnar og á endanum var tekin smá rúntur =) Kettlingarnir mínir dafna vel og eru orðnir voða boltar. Búnir að opna augun og alles. Í gær var ég að taka myndir af þeim. Setti þá oní háhælaðan skó og upp í hillu og tók svo mynd.
En að öðru. Ég var að keyra í bæinn í morgun. Sem er ekki frásögu færandi nema að það var tvennt sem fór svo í taugarnar á mér og gerir það flesta morgna þegar ég keyri úr BGN til RVK. Í fyrsta lagi þá hlusta ég oftast á FM 957 á leiðinni sem er held ég bara ein lélegasta útvarpsstöð í heimi (en samt hlusta ég alltaf á hana). Myndi vilja hafa hana án þess að þetta leiðinlega fólk sé að tala.. Væri fínt ef það væri bara tónlist. En já þessi viðbjóðslegu leiðinlegu kellingar sem eru í þessum morgunþáttum eru óþolandi! Þessi sem var í morgun var svo neikvæð að henni fannst allt ömurlegt og hitt og þetta ætti ekki að vera svona heldur hinsegin. Fékk alveg nóg af henni og setti bara disk í! Greinilega engin sem nennir að vinna í útvarpi nema útbrunnir gaurar og gamlar kellingar..
En í öðru lagi. Þá er það þegar ég er að keyra öll hringtorgin og það í Mosó... Það er bara það sem fer mest í taugarnar á mér af öllu. Það eru 2 akgreinar. Hægri er til að keyra bara beint í röð og vistri er til að taka fram úr. Þær eru ekki til að stífla allt. Vá þetta er svo óþolandi... Þetta þarf alls ekki að ganga svona. Það væri svo auðvelt að keyra þarna ef allir færu eftir þessu. Síðan tala ég nú ekki um alla sem að svína í hringtorgum.. Arrrrg..
En ég ætlar ekki að svekkja mig á þessu þó svo ég geri það í hvert skipti sem ég keyri þessa leið. Best að hlakka bara til þess að fara í frí og geta verið heima í ró og næði..
Meiri háttar veður búið að vera alla vikuna. Á nú reyndar að fara rigna síðdegis. En það þarf jú stundum að rigna. Svo léttir til aftur á laugardaginn og svo sennilega bara sól aftur, eða það segir spáin =)
Helgin alveg óráðin. Föstudagurinn er nú samt nokkuð ráðinn. Matur hjá Lóu og síðan tjútta kannski smá. Laugardagurinn verður svo bara að koma í ljós. Kannski ef aðstæður leifa þá skellir maður sér kannski bara í bæinn =)
En jamm jamm nóg að gera í vinnunni þessa stundina, koma stelpu inní mitt til að ég geti farið í frí.. Gaman að þessu..
Þetta var held ég neikvæðasta blogg sem ég hef bloggað.. Talandi um að kellingin í súper sé leiðinleg.. Jahh svona er þetta... En endilega segja hvað ykkur finnst um þetta!
Mánudagur...Heiðrún Halldórsdóttir
Þessi vika og einn dagur í næstu og þá ef ég komin í 15 daga frí.. Sjæse hvað mig hlakkar til...Nema hvað enn ein helgin búin.
Föstudagur: Brunaði heim í BGN. Skelltum okkur í sund ég, mamma, Lóa og Svava. Eftir það skelltum við okkur heim til mín þar sem við grilluðum kjúkkling. Bara semí vel heppnað. Eftir það skelltum við dótinu í bílinn og renndum af stað í útilegu. Mamma kom með þá hugmynd að við færum í Laugargerðiskóla(Hótel Eldborg) sem við gerðum. Vorum komnar á skikkanlegum tíma í þetta skiptið. Tjölduðum tjaldinu og byrjuðum að drekka. Fórum svo á trampólín, í sund og í ganni slag. Sem endaði með því að ég snéri mig á hnénu (ekkert alvarlegt, finn varla fyrir því lengur). Mjög gaman.
Laugardagur: Vöknuðum við um hálf 3. Eða svona um 2. Tókum tjaldið saman og svona. Brunuðum í nesið. Svava fór síðan upp í Skorró en við Lóa skelltum okkur í sund =) Eftir sundið kom ég heim, lagðist upp í rúm, horfði á fréttirnar og síðan sofnaði ég og svaf til 9. Skellti mér í grill með Gunnari og .guð til tengdamömmu Gunnars. Eftir matinn skelltum við .guð okkur í bíltúr um sveitirnar. Í þeirri ferð varð kveðjustund hjá mér og símanum mínum. En þannig er mál með vexti að ég missti hann út úr bílnum þegar ég var að opna hlið og tók því miður of seint eftir því.....og .guð keyrði yfir hann..... Og hann varð að klessu ojj bara!!! Er núna með síma í láni. Sé svo til hvað ég geri í þessum símamálum. Mjög svekkjandi! Síðan eftir þennan merka bíltúr, skellti ég mér smá rúnt með Lóu. Var síðan bara komin snemma heim í ból.
Sunnudagur: Svaf til hálf 1. Mjög gott að sofa svona lengi. Sá þá að augun á kettlingunum eru aðeins farin að opnast. En bara oggoponsu lítið. Einn er reyndar með alveg lokuð ennþá. Síðan fór ég með alla strolluna í sveitina. Guðni kom líka og við lágum í sólbaði langt fram á dag. Skelltum okkur þá á hestbak. Síðan brunaði ég í BGN með hundana og köttin. Þegar ég kem heim, kíki inn í herbergi þá sá ég að kettlingarnir voru horfnir. Ég fékk alveg sjökk, leita og leita að þeim en finn þá hvergi. Sé þá að það var opið inn í bílskúr, og fæ ennþá meira sjokk því ég hélt að Litlakisa væri bara stungin af með þá. Síðan fer ég aftur inn í herbergið mitt og leita betur undir rúminu, sem ég hefði betur gert strax því þar lágu þeir í haug. Þá höfðu þeir skriðið sennilega upp úr körfunni sinnu og voru komnir þangað, núna hef ég sett þá í góðan kassa sem þeir hafa það mun betur í. Meðan á þessu stóð voru Gunnar, Guðni, Dúdda og HG að bíða eftir mér því að við vorum að fara með rollur á fjall. Þetta reddaðist nú allt. Við náðum svo í rollurnar og brunuðum svo upp í fjall með þær. Rosalega gaman að koma upp í þennan fjallkofa. Við grilluðum þar, löbbuðum um og höfðum það mjög gott.. Og er stefnan að taka eina helgi þar í útilegu og veiða og svona =) Held það væri rosalega gaman og allir búnir að taka vel í þetta =) Held ég!
Eftir að ég var búin að fara í sturtu og svona (Var mjög skítug eftir þannan dag) skellti ég mér rúnt með Thlemu sem endaði á því að setjast í Skalló, sátum þar og töluðum til eitt í nótt. Mjög gott. Svaf mjög vel og vaknaði eitur hress =)
Jæja ætla að reyna að gera eitthvað, láta tíman líða svo það styttist í fríið mitt..
Sá hérna snilldar frétt á www.mbl.is í morgun:
Slökkvibíllinn á Kirkjubæjarklaustri gafst upp
Eini slökkvibílinn á Kirkjubæjarklaustri bræddi úr sér þegar hann var á leiðinni til að slökkva eld í mosa í Skaftárhreppi í síðustu viku. Að sögn lögreglunnar á Hvolsvelli, er bíllinn frá tímum síðari heimsstyrjaldar og er talið að ekki verði gert við hann. Von er á yngri en notaðri bifreið frá öðru slökkviliði.
Ég hreinlega skellti upp úr þegar ég las þetta.
