Aðalvalmynd

Myndir 2009...

Auglýsing

Myndir...

Bloggarar...

Börnin...

Ýmislegt...

Gagnasafn

Ný færsta og læti..Heiðrún Halldórsdóttir

Jæja ég hef ákveðið að brjóta brodd á ofulæti mínu og blogga dulítið, enda ekki gert það frá því 2. júlí.. Ætli það sé ekki komin tími á smá línu..

Sumarið er víst búið. Mjög gott sumar=) Mikið skemmtilegt gert og mjög ánægð með það, hefði samt mátt vera aðeins lengur, maður var að fatta að það væri að byrja þegar það var búið.. Stutt í jólin..

Annars er voðalega lítið að frétta hérna úr Borgarnesinu.. Skólinn byrjaður á fullu og mér gengur bara nokkuð vel. Að vísu eru að koma núna stór verkefni en það er svo sem allt í lagi að fara að bæta í þetta.. Vígsluathöfn skólans er einmitt á fimmtudaginn. Síðan er vetrarfrí 7. nóv. Það er bara nokkuð gott..  Síðan er það vinnan, elska vinnuna mína og finnst alltaf gaman að fara að vinna.. Er að vísu að vinna svolítið mikið, en það er allt í góðu.. Vinna s.s alltaf fyrstu 3 helgarnar í mániðinum.. já mjög óheppilegt, á frekar lítin pening síðustu helgarar.. haha

Körfuboltinn alveg að byrja, einn leikur að vísu búin, sem var feitt tap.. Nú síðan hefst deildin á föstudaginn. Á móti Blikum í Kópavogi.. Líðið s.s er ekki með neina útlendinga og Pálmi, Hafþór og Finnur munu þjálfa.. Þetta verður eitthvað glæsilegt.. NOT! Nú ég get ekki sagt að ég sé dugleg í íþróttahúsinu, bara sökka feitast.. Að vísu fer í ég magi, rass og læri sem tekur á, en það er bara 2. í viku.. Þarf að fara að gera eitthvað af viti í þessum málum.. Þar að auki er ég frekar slök í hestunum.. En það er svo sem ekki mikið að gerast í því.. Þetta kemur allt þegar daginn fer að stytta og maður hefur ekkert að gera...

Nú síðan af skemmtunum.. Við vonkonur höfum nú verið í slakari kanntinum hvað það varðar.. En það dúkka upp eitt og eitt kvöld. Reyni að gera það svona milli vinnu og skóla.. Síðasta djamm var Suðamessa 2008, reddaði mér fríi á sunnudeginum og gerði mér glatt kvöld með mínu fólki.. Partý hjá Thlemu, rosalega gaman. Fórum svo á ballið og týndum hvor annari.. En fann þar alla fjölskylduna og dansaði fram á rauða nótt með sistkynum og mömmu.. Mjög skemmtilegt. Mynda linkar hér til hliðar..  Síðan er bara að fara að plana sumarbústaðarferð stelpur ekki satt??

Nema hvað... Mikið er barnalánið í kringum mig.. Áslaug Rún sæta frænka mín varð 1 árs 14. september. Hún er algjör krúttubomba. Nú síðan eru það litlu tvíburavinkonur mínar sem eru búnar að fá nöfn. Sara Fanný og Eydís Anna. Þær alveg rifna út. Bara vest hvað ég er óduglega að fara í bæinn að hitta þessar skvísur.. Mætti vera oftar.. En það er kreppa og bensín er dýrt, mæðurnar þurfa bara að vera duglega á barnalandi=) Koma svo Ragnheiður og Katrín=)
Nú síðan er það litlan þeirra Gunnars og Dúddu. Hún fæddist 9. ágúst. Hún er líka búin að fá nafn og heitir sú stutta Agla. Finnst það alveg svakalega flott nafn. Hún er ekkert smá duglega og farin að leika alls kona listir. Snúa sér og algjör dúlla.. maður sér samt ekki eins mikinn mun í hvert skipti þar sem maður sér hana svo oft.. Já maður er heppinn að eiga öll þessi börn..
Jæja held að ég fari bara að segja þetta gott. Ætlaði nú bara að stikla á stóru en þetta er bara orðið ansi langt. Er orðin sjúk í þætti og get ekki hætt að sækja þætti á netið.. Gray´s og Gossip girl standa þó hæðst.
Annars vona ég bara að allir hafi haft gaman af, og ætla mér að vera duglegri að blogga. Og ekki gera neina vitleysu og eyða í rugl í kreppunni=)
Já segjum þetta gott.. Ætla að setja nokkrar svipmyndir frá liðnum dögum og mánuðum...
Heiðrún Halldórs kveður.

Já það var stuð á Suðamessu.. hah

Ég með Öglu Gunnarsdóttir, ný skírða.

Ég með Söru Fanný og Eydísi

Áslaug Rún daginn f. 1. árs afmælið sitt..

Þessir voru einu sinni litlir. En ekki legnur, samt svo stutt síðan..

Ein í lokin úr afmælinu mínu. Ég með brot af vinkonunum. Gott djamm.. Ekki satt Svava? hah
Þessar árans myndir vilja ekki vera í miðjunni!!!!!

Þriðjudagur...Heiðrún Halldórsdóttir

Jæja....

Nokkrir punktar frá liðnum tímum..

- Amæli Söru Daggar afstaðið.. Mjög skemmtilegt kveld =)
- Hestaferð sem að alveg hreint æðinsleg í alla staði.. Hrikalega gott að vera upp á fjalli á hesti með ekkert símasamband.
- Fórum í útlegu síðasta föstudag.. Dásamlegt alveg að komast og sofa í hreyna loftinu, fá sér hvítvín og sofa eins og ungabarn.. (Að vísu var skítakuldi)
- Ég og Thelma fórum einn daginn í Landbrodd og létum líða úr okkur.
- Er síðan búin að vera að vinna eins og viteysingur þess á milli.. Og er að fara að vinna morgun og hinn.
- Litlu yndilegu tvíburnarnir eru komnir í heimin pínulitlar og sætar. Voru aðeins að flýta sér en það er bara betra=)
- Fórum á Gus Gus og Davið Guetta...

Punktar um komandi daga..

- LANDSMÓT HESTAMANNA........ Get ekki beðið..
Fer beint eftir vinnu á fimmtudaginn með fullan bíl. Ég, Dúdda ólétta, Krummi og Hörður Gunnar.
- Dúdda sett 5. ágúst.. Þá verður komið kríli til að hnosast með.. Mikið verður það gaman.
- Afmælið mitt 18. júlí og þá er ég jafnvel að hugsa um að halda smá teiti..
- Reyna síðan að fara í útilegu sömu helgi..
- Annars er það bara vinna vinna..

Jæja ætla að koma mér í rúmið vinna í fyrramálið =)

- Afmælið mitt

10. JÚNÍ.. Þriðjudagur..Heiðrún Halldórsdóttir

Jæja já, hvorki meira né minna en 2 mánuðir og 2 dagar síðan ég ritaði hérna..
Svo sem ekkert svakalegt búið að gerast og ætla ekki að telja það allt upp hérna..

Annars þá er ég hálskirtlunum fátækari frá því síðast og satt að segja elska ég að vera laus við þá.. Það er eins og heill haus hafi losnað úr hálsinum á mér, mikill léttir og mun betra að borða og allt..

Síðan er bara þetta venjulega, djamm, vinna, skóli og bla blí blú.. Gekk vel í skólanum og hlakka til að byrja aftur í haust, reyna að klára þetta sem eftir er...

Allavegana þá er allt að gerast.. Sumarið komið og allt framundan..
Hef hafið störf hjá móðir minni svo að hún komist í sumarfrí í júní.. Samhliða hótelstörfum á Hótel Borgarnesi.. Í júli og ágúst er það svo Holt!

Skemmtanir eru jú partur af sumrinu og er maður byrjður að skipuleggja það og buin með nokkrar skemmtanir..
Á síðast laugardag gerðum við stöllur (ég, Lófa og Svava) okkur glaðan dag og fengum okkur í aðra tána og kíktum svo rölt í frábæru veðri í miðbænum um kvöldið..

Næstu helgar eru svo þétt skipaðar..
13.-15. júní - vinna föst og sunnudag.. Útskrift hjá Dúddu á laugardag og jafnframt afmæli hjá Söru Dögg...
16. júní - David Guetta og GusGus...
20.-22. júní - Hestaferð...
27.29. júní - Vinna...
4.-6. júlí - Landsmót hestamanna.. Frá fimt til sun =)
18. júlí afmæli.. Jafnvel bara grill og bjór =)
Verslunnarmannahelgin - EYJAR 2008..
Þetta er svona það helsta þetta sumarið.
En já það eru nánast allar frí helgar skipulagðar.. Reyndar 1 eða 2 sem ég er ekki búin að ákvaða.. Fyrir svo utan alla frí dagana í miðri viku þegar ég verð á vöktum í júlí og ágúst=)

Þetta verður alveg meiri háttar.
Dagurinn í dag er síðan búin að vera meiri háttar.. Var að vinna til 4. Þá ákváðum við Thelma að skella okkur til RVK í ljós (já skyndihugmyndirnar geta verið góðar) fengum okkur síðan að snæða með Svövu og fórum svo heim. Horfðum á einhvern þátt, fengum okkur ís, skelltum okkur á hestbak, sprelluðum og löbbuðum svo upp á Grábrók.. Hörkudagur með hörku konum=) hah
Myndir af þessu eru svo væntanlegar á myspace.. Já vel á minnst myndirnar frá laugardagskveldinu eru komnar inn.. Ekkert nema myndir af okkkur og ennngu öðru..

Allavegana.. Þá hef ég brotið ísinn að nýju og búin að blogga.. Vil frá fullt af athugasemdum=)

//Heiðrún Halldórsdóttir sumarkona//

Til hamingju með afmælið systir góð:)Heiðrún Halldórsdóttir

Huhumm.. Já ætla að byrja á að óska minni áskæru systur til hamingju með afmælið.. Hún er orðin 19 ára stúlkan.. Ég fékk svona vægt sjokk þegar ég gerði mér grein fyrir hvað hún væri að verða gömul.. Sem segir þá að ég sé að verða 22 ára í sumar.. Mér finnst það alveg allt og mikið.. En já það verður s.s húllumhæ og læti hérna í dag þar sem að hún býður 13 manns + eitt barn.. Matur og kökur og svona..

Ég og hún Guðrún=)

Hjálmar átti síðan afmæli 1 og Ingi Rúnar 5.
En að allt öðru.. Nenni ekkert að vera að blogg neitt af viti.. Helgin var góð og meira að segja alveg edrú=)
Næsta helgi er síðan bara vinna frá fimmtudegi til sunnudags.. Hlakka mikið til að fara að vinna..
Þokkalegt að frétta, skólin alveg á meira en milljón.. Eða kannski mest mér að kenna þar sem að ég er svo mikill slugsari að allt er á síðustu stundu hjá mér..
Körfuboltaliðið tapaði síðan í Grindavík og er því komið í sumarfrí.. Bara nokkuð góður vetur=) ÍR síðn bara benti KR út sem mér fannst æðiNslegt.. Vona að það verði ÍR-Snæfell í lokinn og að Snæfell vinni þetta=)

Nú síðan er það svaka fréttinn um okkar fyrrum leikmann Dimma.. Fannast þetta frekar fyndið..
http://visir.is/article/20080408/FRETTIR01/80408028
Bjóst ekki alveg við þessu reyndar.. hahaha en þarna var svo sannarlega úlfur í sauðargærunni..

Jæja ætlaði bara að hafa þetta örstutt..
//Hædí Hó//

Mánudagur...Heiðrún Halldórsdóttir

Það er víst LÖNGU komin tími á nýtt blogg..
Páskarnir mínir voru frábærir.. Eða páskafríið allt..
En já s.s á föstudaginn langa var haldið í páskajeppaferðina sem var alveg rosalega skemmtileg.. Ég skemmti mér mjög vel og hafði gaman af..
Myndir úr ferðinni komnar inn.. Eru hérna til hliðar í 2 hlutum.. Endilega að kíkja á það..

Það var síðan komið heim á páskadagskveld og ég kom beint heim í matinn.. Gæddi mér á páskaeggi og hafði það gott.. Horfði á myndina Foreldra sem að mér fannst ekki eins góð og ég var búin að búast við..
Það kveldið fór ég síðan til Thelmu í partý sem endaði með því að við skelltum okkur í Stykkishólm á ball við stöllur. Það var bara mjög skemmtilegt.. Líka komnar myndir frá því sem eru reyndar ekki margar..

Skólinn byrjaði síðan aftur á þriðjudaginn.. Það var bara mjög gaman, eftir svona langt frí.
Á föstudaginn var ég síðan ekkert í skólanum. Fór til RVK á föstudagsmorgun. Og síðan var haldið til Grindavíkur á leik.. Töpuðum reyndar þeim leik, en var samt góður leikur og sýndi að við áttu mikla möguleika á að vinna þá í næsta leik.. Það kveldið var ekkert gert nema taka smá rúnt og sovna..

Á laugardaginn kíkti ég síðan aðeins til Álaugar og co. Allt að gerast á þeim bænum, Ragnheiður og Davíð komin á nýjan bíl og Ingi Rúnar búin að fá vespu.. Já knúsaðist með Áslaugu Rún og svona..
Um kveldið fórum við svo í póker, ég, Guðni, Gunnar, Dúdda og Krummi.. Finnst það mjög skemmtilegt..
Seinna um kveldið kíkti ég síðan í kaffi til Huggu, rosa gaman sem endaði með kvöldstund á Vinakaffi.. Og ég verð að segja að mér fannst þetta bara mjög notalegt.. Síðan tókum við partýhring sem var mjög fínn og svo heim í ból..

Sunnudagurinn fór siðan aðeins öðruvísi en ég ætlaði mér.. Ætlaði að vera ýkt dugleg.. Það fór á annan veg og ég svaf mikið.. Nú síðan var leikurinn um kvöldið.. Ég var satt að segja bjartsýn fyrir hann þrátt fyrir mikla svartsýni undanfarið.. En þeir voru svo góðir í seinni hálf leik í Grindavík að ég hafi mikla trú.. Þetta var æsi spennandi leikur og ég nagaði neglurnar af spennu.. (hef ekki nagað í meira en ár). Skallgrímur unnu síðan leikinn og náðu að kníja fram oddaleik.. Það verður s.s brunað til Grindavíkur á fimmtudaginn=)

Í dag er ég síðan bara búin að vera að læra og svona.. Katrín mín átti síðan afmæli á fimmtudaginn.. Hjálmar á síðan afmæli 1. apríl, Guðrún 8. apríl, Ingi 5. Nóg af afmælisbörnum.

Annars bara mikil rólegheit yfir mér þessa dagana.. Er að reyna að vera dugleg að læra, hesthúsið og *hóst* ræktina.. Ég er að fara að taka mig á í henni.. Löngu komin tími á það.. En maður getur víst ekki allt sem manni langar..

Nú sumarið að nálgast hratt, vor í lofti og daginn farið að lengja mikið.. Sumarið er besti tími ársins að mínu mati og get ekki beðið..
Lok sumarsins get ég síðan varla beðið eftir.. Þar sem að ég á tvær nánar bumbur sem koma báðar í byrjun ágúst.. Settar með nokkra daga millibili.. Ein er sett 5. ágúst og sú seinni 11. ágúst.. Fyrri bumban mín inniheldur eitt barn og hin inniheldur 2.. Vá ég verð umvafin krílum=) Vá hvað verður gaman..
Fyrri sem inniheldur eitt barn=)


Og seinni sem inniheldur tvö börn=)

Annars þá held ég að ég sé búin að skrifa nóg hérna að þessu sinni.. Reyni að koma með blogg ekki með svo löngu millibili..
Hvet alla til að koma á leik í Grindavík á fimmtudaginn og hvetja okkar menn=) Thelma verum svo duglegar í ræktinni=) Vil síðan benda á að það er aftur komin spenna í könnunina.. Síðast þegar ég kíkti þá var jaft hjá Pétri og Stebba nebba.. haha

//Heiðrún Halldórsdóttir//

Páskafrí háskafrí..Heiðrún Halldórsdóttir

Já ég er öll í því að láta ríma þessa dagana.. Finnst það ferlega mikið sport.

Nema hvað, langt síðan ég hef skrifað inn á þetta blogg.. Alveg heilmikið búið að vera að gera og hef alveg heilan helling fyrir stafni í páskafríinu.. Já ég er s.s komin í páskafrí og finnst það alveg meiri háttar.

Síðustu dagar/vikur:
Sumarbústaðarferðin er búin og var hún mjög góð.. Alveg ógó gaman með rosa skemmtilegu fólki. Var einmitt að setja inn nokkrar myndir, tók bara svo ferlega fáar. Lét aðra sjá um það og er það komið á netið víða.. Dönsuðum og drukkum og höfðum gaman alveg alla helgina.. Mjög gaman.
Árshátíð MB var síðan núna á síðasta fimmtudag og gekk hún svona líka vel. Það var komin soldið mikill kvíðahnútur í mallana okkar en þetta kom allt heima og saman og gat bara ekki verið betra held ég.. Vorum rosa ánægð með útkomuna..
Körfuboltinn er alveg að skíta á sig.. Eða sko Skallagrímur.. þetta er bara ekki að gera sig og sér maður fram á að þeir séu að fara detta út í 8 liða úrslitunum.. Frekar mikið svekkjelsi... En það kemur annað tímabil eftir þetta.. Síðan er aldrei að vita nema þeir komi með einhverjar brellur og brilleri bara á þessu. Hvur veit.
Síðustu helgi var ég að vinna á föstudaginn og laugardaginn.. Rosa gaman bara..
Eftir vinnu á laugardaginn eða svona um 9 ákvað ég að skella mér bara í höfuðborgina, það var svo lítið við að vera hérna í BGN að ég bara brunaði til Svövu sætu og við vorum bara að drekka og chilla heima hjá henni.. Nu síðan var ferðinni heitið í miðbæinn, ég reyndar komst ekki þangað! Ekki sökum drykkju samt.. Það var önnur ástæða=) Svava fór og tók þetta út fyrir okkur.
Smá þynnka á sunnudaginn og ég og Svövulingur fórum í sund, borðuðm pitsu og fórum í sund.. Mjög fínt..
Nú síðan á mánudaginn fór ég til háls, nef og eyrnalæknis þar sem að ég er alltaf með eitthvað rugl í hálsinum. Það kom upp úr dúrnum að ég þarf að fara í kirtlatöku.. Hlakkar nú ekkert svakalega til þess en verður örugglega vel þess virði.. Fer s.s í byrjun maí og verð að liggja í rúminu í 10 daga.. 10 daga erum við að tala um allllt og langan tíma.. Verður gaman að sjá hvernig með tekst það.. Þetta var víst eitthvað sem að átti að gera þegar ég var 5 ára sagði læknirinn en ég hef ekkert verið að stressa mig yfir þessu. En já betra seint en aldrei..

Næstu dagar:
Já maður gerir ekki annað en að dásama páskafríið. Í kvöld ætlum við, ég, svava og lófa að skella okkur í bæinn á KR-Skallagrímur í DHL-Höllinni.. Er nú svartsýn á þetta eins og undanfarið.
Á morgun ætla ég að vera dugleg að læra.. Fara í hestús og þess háttar.
Nú á fimmtudaginn er ég síðan að fara í fermingu.. Nú síðan ætla ég mér ekki að vera í faðmi fjölskyldunnar um páskana heldur ætla ég að skella mér í jeppaferð. Það verður eitthvað mega stuð. Förum á föstudaginn og komum á sunnudaginn. Held þetta verði mjög skemmtilegt.. Ég og Hugga erum s.s að fara með Gumma þór og síðan alveg helling af fólki.. Þekki nú ekki alla og hina misvel..
Þannig að þetta verða páskar með smá öðruvísi sniði en vanalega.. En það er bara gaman að breyta til=)

Þetta er svona það helsta sem er búið að gerast og það sem er fram undan.. Gleymi alveg pottþétt einhverju.. En jæja þetta er komið gott í bili..
B.t.w mynni ég á myndir sem ég var að skella inn á facebook=) Myndir frá mars, ekki margar samt..
http://www.facebook.com/album.php?aid=31406&l=c3a68&id=599926243





Nokkrar hérna úr félagslífinu síðustu daga=)

//Heiðrún Halldórsdóttir//

Þriðjudagur..Heiðrún Halldórsdóttir

Jæja hef ákveðið að láta undan þrýstingi vinkvenna minna og blogga nokkrar línur=) Með því skilirði að fá komment=)

Úr mínu viðburðarríka lífi er allt gott að frétta. Skólin alveg á fullu, mikið meira að gera núna finnst mér. En allt á góðu róli svo sem.. Er orðin soldið öflug í íþróttahúsinu aftur, og næ að blanda hestum og rækt ágætlega saman=) Mæti bara með hestaliktina í íþróttahúsið.. hehe
Skallagrímur alveg að tapa sér í að vera lélegir.. Er mjög svartsýn á þetta eins og er..

Þar síðustu helgi var ég að vinna á laugardeginum, og eftir vinnu skelltum við Svava okkur á Dússa gamla.. Endaði með rúnti síðan=)
Síðasta helgi sem var að líða var hins vegar mun skemmtilegri og er ennþá að hlægja upp úr þurru að viðburðum helgarinnar. Var að vinna á föstudaginn og laugardagsmorgun.. Brunaði síðan í höfuðborg landsins og beint í útskrift hjá Þórdísi sem var að útskrifast sem snyrtifræðingur=) Ekkert smá dugleg. Jæja síðan eftir veisluna fór ég og náði í Magna Rúnar sem var búin að biðja mig um að koma á skuata með sér.. Og við skelltum okkur á skauta, rosa gaman=) Datt einu sinni... Vorum alveg í 2 tíma og ég var orðin soldið þreytt satt að segja..
Nú síðan skellti ég mér til Svövu sem að eldaði alveg dásamlegan kjúlla eins og alltaf fyrir okkur..
Síðan var skundað í miðbæ Reykjavíkur í patrý til Þórdísar.. Rosa gaman..
Síðan var ákveðið að mála bæinn rauðan, Svava sá um það að skilja etir rauð spor í snjónum eftir rauðu stígvelin sín.. hehe... Alveg gríðarlegt fjör.. Svo var bara patrý og ekki farið að sofa fyrr en á sunnudagsmorgun.. Er ennþá að ná upp svefni.. Snilldar helgi og takk fyrir samveruna þeir sem voru með=)

Píps bara segja ykkur að það eru ekki nema 3 daga í bústað.. Vá get svo ekki beðið að komast útí sveit og gera ekki neitt.. Hugsa um ekkert nema hafa það næs.. Verður eitthvað stuð á okkur ef ég þekki okkur rétt..  Hugsa líka hvað það verður stutt þangað til eftir viku, þegar við verðum að hlægja af vðburðum þeirrar helgar.. Við erum svo grillaðar..

Jæja ætlaði bara að hafa stutt upplýsingaflæði síðustu daga..
Ég er út..



//Heiðrún Halldórsdóttir//

Miðvikudagur....Heiðrún Halldórsdóttir

Jæja var búin að vera alveg heljarinnar blogg hérna áðan en það fokkings datt út..
Ælaði nú ekki að blogga aftur en ætla að gera það þar sem ég er ekki í stuði að fara að sofa..

Mikið að gera þessa dagana, skólinn alveg á milljón, fullt af verkefnum eins og alltaf og mér finnst rosalega gaman í skólanum.. Þessa dagana eða síðustu 3 daga er ég búin að vera lasin, nældi mér í streftu kokta eða hvernig sem það er skrifað, er búin að fá þá alveg 13 sinnum og veit ekki hvernig á að skrifa þetta.. Pantaði tíma hjá háls-nef og eyrna lækni.. Þetta er orðin alveg frekar leiðinlegt...

Um helgina var ég að vinna föst og laug.. Eftir vinnu á laug skelltum við okkur, ég Svava, Lófa og Fannar á XXX Rottweiler.. Þokkalega gaman maður.. Fannst þeir æði.. hehe skelli myndum inn við fyrsta tækifæri..

Nóg um það, karfan alveg á fullu.. Leikur í Hólminum á sunnudaginn og Skallagr. tapaði.. Er hálf svartsýn á þetta en vona það besta.. Erfið lið framundan..

Páskarnir alveg á næstu grösum.. En fyrst er það jú sumarbústaðurinn, hreinlega get ekki beðið eftir að fara, bjór, pottur, nammi, spjall, spil og kósý.. Umm flestar eru spenntar og flestar ætla að mæta =) Get ekki beðið stúlkur mínar.. Þannig að það er sumó og svo páskar.. Um helgina er ég síðan að vinna á Hótelinu á árshátíð Loftorku.. Það verður eitthvað kreisí mikið að gera.. En það er bara fínt =)
Get ekki beðið eftir að febrúar klárist.. Finnst þetta leiðinlegast mánuður ársins.. það gerist ekkert í þessum mánuði!!!
Febrúar er búin að hjálpa mér að heimsækja tilvistarkreppu félagið við og við.. Veit ekki hvað ég á að gera í sumar og allt eitthvað svo öfugsnúið í hausnum mínum stundum.. En með sumarið þá er sumardvölin ekki allt sumarið og ég veit ekki hvort það nægir mér.. Þarf að skoða það.. Ætlaði mér annars að vera í Borgarnesiu en ég og Svava erum mikið að velta fyrir okkur að fara eitthvað út á land bara, þá lengra en Borgarnes.. Komast bara tvær burt frá öllu fara í eitthvað ævintýri.. Okkur langar allavega =) Ef ég þekki okkur rétt þá verður gert eitthvað sneðugt..

En jæja ætla að fara koma mér í bælið, svo ég geti vaknað í skólan vonandi..

Verð samt að enda þetta mér frétt sem er mest lesin á www.visir.is
Þar sem að þetta er í okkar bæjarfélagi.. Hef reyndar heyrt að hann sé farin, sem betur fer..

Barnaníðingur í Borgarnesi

„Það var tilkynnt um að þessi maður væri þarna og við fórum og ræddum við hann. Ég get því staðfest að hann dvelur þarna," segir Theodór Þórðarson yfirlögregluþjónn í Borgarnesi.

Lögregla fékk ábendingu um að barnaníðinginn Ágúst Magnússon dveldi á hóteli nálægt Borgarnesi. Hann er nú á reynslulausn vegna dóms sem hann afplánaði á Litla Hrauni fyrir að níðast á sex drengjum.

Theodór segir að lögeglan aðhafist ekkert frekar í málinu þar sem Ágúst hefur ekki brotið af sér en samkvæmt heimildum Vísis er hann háður ákveðnum skilyrðum. Hann verður að tilkynna sig reglulega og má ekki fara á staði þar sem börn stunda tómstundir.

Theodór segir þekkt í þessum geira að fólk verði áhyggjufullt og hafi því samband við lögreglu. „Við reynum þá að bregðast við með því að fá staðfest hvort svona orðrómur eigi við rök að styðjast. Stundum fer fólk mannavillt," segir Theodór.

Vísir hefur fengið ábendingar um að Ágúst dvelji á Mótel Venus en Thodór vildi þó ekki staðfesta nákvæma staðsetningu við Vísi.

Áður hefur Vísir sagt frá því að Ágústi hafi verið úthlutaður dvalarstaður á höfuðborgarsvæðinu.

http://visir.is/article/20080219/FRETTIR01/80219095

Ný könnun...Heiðrún Halldórsdóttir

Vil vekja athygli á því að ég var að skella inn nýrri könnun..

Tel þetta spennandi keppni.. Við erum að tala um aðal athafnarmenn Borgarness..
Endilega að kjósa..
Annars allt gott að frétta, er bara ekki að nenna að blogga.. sry, geri það kannski fyrir helgi..

//Heiðrún Halldórsdóttir//


Fimmtudagur...Heiðrún Halldórsdóttir

Jæja...

Frekar ný vöknuð... Þegar ég vaknaði leit ég út um gluggan og sá lítið.. Bílar stopp útá götu vegna blindbils.. Og ruðnings bílinn búin að festa mig inni.. Ekki sérlega skemmtilegt.. En þar sem að kennarinn var veðurtept upp í sveit var engin tími, mér til mikillar lukku =) Vona að það skáni þegar ég á að fara aftur..

En að öðru.. Körfuboltinn... Það má segja að ég sé ennþá að ná mér efitr körfuboltaleikinn á sunnudaginn.. Ég sver það ég var næstum farin að gráta með tárum og ekka.. Þvílkíkt drama... En svo sem bjóst ég alveg eins við þessu þar sem að allir voru svo öryggir um að Skallagrímur myndi vinna...
En það koma fleiri körfuboltaleikir eftir þennan.. Fjölnir-Skallagrímur aftur á morgun í Grafarvoginum, og eins gott að við vinnum hann.. Held reyndar að bróðir minn ætli að erfa þetta eitthvað..

En nóg um það.. Skólin gengur fínt.. Og allt að koma í gusu núna.. Verkefni og svona skemmtilegt.

Bolludagurinn var á mánudaginn.. Ég bakaði nokkrar bollur en borðaði ekkert svakalega af þeim.. 3 eða 4 ef ég man rétt.. Á þriðjudaginn var síðan sprengidagurinn.. Ég elska þann mat.. umm það var svo gott.. Fékk mér meira að segja þrisvar afganga í gær.. Namm namm..
Í gær var síðan öskudagurinn.. Það kom sem betur fer ekki einn einasti krakki hingað.. Alla vega ekki á meðan ég var heima..
Í gæt skellti mér síðan í ræktina eftir að hafa verið heldur löt upp á síðkastið.. Og var nokkuð sátt að hafa drullað mér..

Í dag ætlaði ég já að fara í bæinn á leik, ætla jafnvel að gista líka bara og fara heima á morgun.. Held það væri bara fínt.. Er samt reyndar farin að hallast að því að vera bara heim, hreinlega nenni ekki ef að veðrið verður með eitthvað mambó.. Er síðan að vinna á föst og laug. Áslaug og co eru síðan að koma sunnudaginn, það verður nú gaman að fá þau =)

Næst mál á dagskrá mun síðan vera hin umrædda sumarbústaferð.. Það er s.s staðfest hér með að það verður sumarbústaður 7.-9. mars takk fyrir pent.. Það mun verða aðeins öðruvísi fyrirkomulag á þessu núna.. Síðasta ferð var ansi skrautleg.... vægast sagt!! Vöknuðum á sunnudagsmorguni með helllllling af auka fólki í húsinu.. Frekar skondið samt.. Gólfið illa klístrað að það var hræðilegt og ekki sérlega skoplegt að þrífa eftir herlegheitin..
Þannnnnig að... Núna verður farið aðeins lengra í burtu til að koma í veg fyrir að allir renni í partý... Verður s.s meira svona girl-þema.. Þó svo að allir sem nenna að keyra í smá tíma séu velkomnir.. Heitur pottur, nammi humm bara smá samt, bjór, grill, spil og spjall.. Ég hlakka mikið til og vona að þið stúlkur segið það sama=)

Vá síðan veit ég bara ekki hvað ég á að gera eftir að ég kláraði Gossip girl.. Buhuhu, hefði átt að spara það smá.. Jæja finn mér eitthvað annað til að glápa á..

Já held að þetta sé bara komið nokkuð gott að þessu sinni..

Hafið það mega gott =)

//Tvær hérna af þeim sem að við erum að fara í//

Ætlaði að segja nokkrar frá því síðast og þarsíðast.. En... ég gat það ekki..
Hérna er hins vegar slóðin... Endilega kíkið, fyndið að skoða þetta aftur...

http://heidrunhalldorsdottir.spaces.live.com/
...Komment takk...

//Heiðrún Halldórsdóttir//

Síða 1 af 17

Prófíll

Könnun

Hverjum er að kenna að Sparisjóðurinn fór á hausinn?

Teljari

Klukkan

Leit

Innskráningar kubbur